Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Sviss um ICESAVE

Samkvæmt vef Utanríkisráðuneytisins:

Utankjörfundaratkvæðagreiðslu erlendis fer fram hjá sendiráðum Íslands, fastanefndum Íslands hjá alþjóðastofnunum og ræðismönnum Íslands samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur einnig ákveðið að utankjörfundaratkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis.

Að jafnaði hefst utankjörfundaratkvæðagreiðsla 8 vikum fyrir kosningar og auglýsir utanríkisráðuneytið hvar og hvenær atkvæðagreiðsla hefst hverju sinni.

Sjá nánar XII. [...]

Bjórkvöldið í Zürich er núna á fimmtudaginn – 10.mars kl.19

Venjulega eru bjórkvöldin í Zurich þriðja fimmtudag í hverjum mánuði en nú fellur mars dagsetningin á St. Patrick’s Day og því ekki hægt að bóka borð á enskum/írskum pöbbum það kvöld. Við höfum því ákveðið að færa bjórkvöldið fram um eina viku og hittast á fimmtudaginn í þessari viku.

Sami staður og sami tími [...]

Mánaðarlegt bjórkvöld í Basel á föstudaginn 5.nóvember kl.19

Fyrsta föstudag í hverjum (eða svo til hverjum) mánuði er bjórkvöld Íslendinga í Basel.

Hittingurinn næstkomandi föstudag er í Restaurant Kunsthalle, Basel við hliðina á leikhúsinu. Mæting er upp úr kl.19.

Kveðja, Hannes.

Minni á bjórkvöldið á morgun – kl.19 á Paddy Reilly’s

Kæru Íslendingar í nágrenni Zurich og víðar,

fyrsta bjórkvöldið fyrir um mánuði síðan tókst vel – það mættu um 10 manns – svo nú endurtökum við leikinn og búumst við enn fleirum.

Sjáumst á morgun.

kv. Sigrún og Jón

Paddy Reilly’s Irish Pub & Restaurant Talstrasse 82 8001 Zurich

Góðar Íslendingar í Wiesbaden

Góðir Íslendingar til Wiesbaden 26 og 27.júní

Borgarleikhúsinu hefur borist boð frá alþjóðlegri leiklistarhátíð í Wiesbaden, um að sýna þar leikritið “Góðir Íslendingar”, sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu 22. janúar sl. Hátíðin verður haldin í tíunda sinn í júní, en á hátíðinni, sem þykir ein sú virtasta sinnar tegundar, er einungis fjallað um nútímaleikrit. [...]